Heyrðu ég ætla bara að þakka ykkur stelpunum fyrir gærkvöldið
Það var æðislegt að hitta ykkur allar
En annars langaði mig að deila með ykkur öllum nokkrum skondnum atriðum sem hún elskulega Kolbrún gerði og sagði í gær, ég og Hjördís vorum í hláturskrampa alla leiðina til Reykjavíkur í gær
Allavega það fyrsta Kolbrún gerði að hún var að fara að taka bensín á Orkustöðinni á Selfossi, hún fór á dæluna sem var lengra í burtu og ég og Hjördís vorum bara að spjalla inni í bíl á meðan hún fer út og borgar í sjálfsalann. Síðan kemur hún inn í bíl og öskrar " ohhh ég er svo mikið fífl" og bakkar bílnum að dælunni fyrir aftan.
Hjördís: Hvað gerðist Kolbrún, hvað gerðiru?
Kolbrún: Ég borgaði í vitlausa dælu og fór út og byrjaði að dæla
Ég og Hjördís grenjum úr hlátri og síðan kemur Kolbrún inn og við spurjum hana betur út í þetta og hún segir " Ég var bara að borga og svo kemur gaur og segir að ég sé að borga í vitlausa dælu, að núna séu tvær dælur" Hahaha ég veit ekki hvert ég og Hjördís ætluðum að fara og Kolbrún var ohhh ég er svo mikið fífl. Síðan kemur gaurinn fyrir framan okkur og fer að borga í dæluna og sér að við erum að grenja úr hlátri og hann getur ekki varist það að hlæja smá! Hahah ég og Hjördís hlógum endalaust af þessu.
Síðan vorum við komin í Reykjavík og vorum að keyra á Miklubrautinni síðan heyrist allt í einu í Kolbrúnu
Kolbrún: Hey stelpur sjáiði eldinn sem kemur útúr bílnum sem er fyrir framan bílinn sem er fyrir framan okkur?
Ég og Hjördís: Ha? Nei
Kolbrún: Jú Íris sérðu það ekki, tékkaðu
Ég fer og sé hvað hún er að meina... grenja úr hlátri og segi henni að fara á akreinina við hliðina til að tékka á þessu sjálf. Haha viti menn þá var þetta bara þokuljós eða eitthvað sem var beint fyrir ofan púströrið. Hahaha jiii við hlógum svo mikið.
Við vorum á leiðinni heim, ákváðum að taka einn Laugara og svona, vorum síðan bara að fara á Sæbrautina og sá sem er fyrir framan okkur drap á bílnum og svona. Síðan keyrum við bara eftir honum í svolítinn tíma á Sæbrautinni síðan segi ég henni að fara við hliðina á honum á næsta rauða ljósi til að sjá hvaða auli drap á bílnum sínum. Síðan eru það bara einhverjir gaurar. Það kemur grænt og Kolbrún fer bara af stað og gefur allt í botn, og síðan segi ég henni að skipta um akrein því við þurftum að fara að beygja, og hún gerir það og er næstum því bara komin inní hliðina á þessu bíl sem gaurarnir voru í! hahaha váá okkur brá svo mikið og ég hló svo mikið og Kolbrún skammaðist síðan svoooo mikið
hahaha þetta var yndislegt
Einnig vorum við á Hellisheiðinni og þar var Kolbrún að brillera að keyra eða þannig, búin að keyra 3svar sinnum útaf eða eitthvað, hún vissi ekkert hvar hún átti að keyra... hahah þetta var án efa fróðlegasta bæjarferð sem ég hef farið í og heimleið
En ætlaði bara að deila þessu með ykkur


Elska þetta pakk
-Íris sem loksins er orðin 18 ára